Gleðilega páska

Daginn daginn og Gleðilega páska.

Erum komin heim úr Ameríkunni, þetta var rosalega vel heppnuð og skemmtileg ferð, kem með ferðasöguna fljótlega Wink  En hér er ein mynd af Friðgeir þegar hann (við) hittum Travis Pastrana:

USABackflip Pastrana   #16 og #199 í stuði

 

 

 Pastrana að taka backflipp, við sáum hann gera
 svona stökk, geggjað Smile

 

 

 

 

Later.......


Örfærsla (herma eftir Röggu minni, nema mín örfærsla er aðeins lengri en hennar)híhíhí

Daginn daginn,   fallegt gluggaveður úti í dag,  ég er nú bara búin að hanga inni í allann dag, ætla út þegar fer að kvölda.  Er að fara í keilu með fullt fullt fullt af fólki og djö.... ætla ég að rústa þessu og taka bikarinn heim Cool   Ein bjartsýn, hehe. 

Búin að gera fermingarboðskortinn fyrir Friðgeir og senda þau út Happy    þá á ég bara eftir að gera allt hitt  Crying úffffff,  nei nei þetta reddast pottþétt  (og ég heiti Pollýanna í dag)  Skelli myndinni sem ég notaði inn fljótlega.

Farin að setja upp andlitið,

Later........ 

Ps.  Takk fyrir upplýsingarnar Þórir Smile  (ef þú lest þetta),


Minneapolis......

Jæja þá eru bara 9 dagar þar til við förum út Wink



Maðurinn minn var að kíkja í gær á netið (sem hann gerir náttúrulega daglega, hehe) og hann fann 2 tónleika á meðan við erum úti,  einir með Bruce Springsteen og aðrir með Tom Jones (nærbuxnakallinn Errm), sonurinn vildi nú ekki kannast við að það væri einhver til sem héti Bruce eitthvað (eins og hann sagði), en Tom Jones hafði hann nú heyrt um, en vildi ekki fara á tónleika með honum,  þannig að ég efast um að við förum á tónleika, enda verður nóg að gera hjá okkur þessa viku sem við verðum úti,  horfa á supercrosskeppni, hitta bestu gaurana daginn fyrir keppni og fá eiginhandaáritanir, plaköt og myndir,

T.d. þessi:   Kevin Windham á Hondu (ofcorse), ég held með honum Tounge Kevin Windham

 

svo ætla Guðni og Friðgeir að hjóla líka smá, í rosa flottri innanhússhöll, geggjað Grin 
Versta við það að Guðni fann tónleika sem við hefðum viljað fara á:   Bon Jovi,  en þeir eru sama kvöld og við förum heim Devil

 

Ef einhver þekki vel til í Minneapolis, endilega koma með hugmyndir fyrir okkur, t.d. hvar er gott að borða, hvað maður verður að sjá, o.s.fr.

 

Later........


Hellúúú

Já já, ég er á lífi Smile og er latur bloggariWhistling

Nú eru bara 15 dagar þar til við förum til USA, og ég hlakka ekkert smá til, er reyndar lítið búin að hugsa um að ég VERÐI að fara í flugvél (veit að ég get farið með skipi, en það er ekkert betra en flugvél, hehe) og á meðan ég hugsa ekki um það, þá verður mér ekki flökurt og illt í maganum og allt það Frown  jamm ég er sjúklega flughrædd en þetta verður ekkert mál, hlakka bara til Cool

Hef ekki meiri tíma núna til að blogga, klára í kvöld eða fyrramálið, þannig að bíðið þið spennt eftir viðbótinni, hahaGrin

Later......... 

Nú er later komið  Wink  
    Hmmm, hvað á ég að segja ykkur meira, haha.  Yndislegi bróðir minn sem er ljósmyndari, tók fermingarmyndirnar af Friðgeir Óla núna í vikunni, er ekki búin að sjá þær ennþá samt, hann á eftir að vinna þær eitthvað en hér er ein (óunnin mynd samt):   Fridgeir ferming

 

 Ég að sjálfsögðu gleymdi að taka með hvítan dúk á borðið, notuðum bláan, en ég mundi eftir öllu öðru held ég,  svo ætlar hann brósi minn að koma og taka myndir sem við ætlum að nota á boðskortið, þær verða flottar og að sjálfsögðu með áhugamáli drengsins á Smile
Hann fermist 6 apríl sem er líka fermingardagur bróðir hans fyrir 5 árum og aðgerðardagurinn minn fyrir 3 árum.

Hmmmm, hverju á ég að ljúga í ykkur núna, hehe.  Er bara svo hrikalega lélegur lygari að ég er að hugsa um að hætta bara hér, hef held ég ekkert meira að segja,  jú annars, eldri sonurinn ákvað að halda áfram í skólanum, hann var búinn að gefast upp en ákvað að klára þessa önn, ég vona eiginlega bara að hann skipti um skóla í haust, lemur í kjós Tounge

Later........

 

 


Blogg!!!

Er ekki hætt að blogga (held ég),  hef bara eitthvað lítið að segja þessa dagana.  Er bara að bíða eftir sumrinu, búin að fá nóg af þessum snjó  Devil  Langar að fara hjóla og svona,  get nú alveg hjólað í snjó sko, en er bara kuldaskræfa, hehe.  Ætla að reyna plata kallinn að koma að hjóla um helgina, verðum bara að gera það fyrripartinn af því að Friðgeir er að fara vinna kl 15 í Krónunni, það á alveg eftir að ganga upp, svo er bara spurningin hvert maður fer að hjóla???

Ég byrjaði í líkamsrækt í síðustu viku W00t  hehe, já fór inn á líkamsræktarstöð í fyrsta skipti EVER, komst að því að ég er í hörmulegu formi, en þá bara lagar maður það og bætir sig, mér finnst þetta eiginlega bara gaman (ennþá allavega).  Þarf svo að finna mér góðan sjúkraþjálfara til að taka kögglana úr bakinu, hálsinum, ja eiginlega bara í öllum skrokknum, er eiginlega í steik en það er hægt að læra lifa með því, ekkert voða gott samt, hef ekki verið í sjúkraþjálfun í 3 ár sem er bara ekki sniðugt fyrir mig, vá það eru að verða komin 3 ár síðan ég fór í seinni aðgerðina Woundering og eftir 6 daga eru 18 ár síðan ég fór í fyrri aðgerðina, fékk heilablæðingu Frown   en er á LÍFI sem er náttúrulega bara gott mál.

Jæja nóg í bili og meigiði eiga góðan dag í dag :-)

Later.........

 


Hmmm, I´m back ;-)

Ha er ég bloggari??     Á maður þá að blogga?

Ok, best að reyna þá Wink    Hmmm hvað á ég að segja ykkur?  Lítið búið að gerast eiginlega, Friðgeir fór á ísinn á laugardaginn, rosa gaman frétti ég.  Bauð mömmu og pabba í mat í gær, rosalega gott sko, er svoooo góður kokkur sko Cool   Atli og Anna Karen komin til landsins frá Vietnam, Kambódíu og fleiri löndum sem ég man ekkert hvað heita Blush  Hlakka til að hitta þau næstu helgi í "fjölskyldu-fun"-inu 

Jú og svo erum við búin að panta okkur ferð til USA Smile  ætlum að fara á supercrossið, gaman gaman, fara í Mall of America og svo annað spennó sem ég get eiginlega ekki kjaftað frá strax, ohhh þetta verður svo gaman, við förum semsagt 3, ekki elsti unglingurinn sem er náttúrulega í menntaskóla og að vinna, hann kemur bara með í næstu ferð, einhver verður líka að passa
húsið  Police

Nóg í bili,
Knúz, later................

 


Morgunmatur

Góðan daginn,   Borðið þið morgunmat?   Hvað þá?   Minn "morgunmatur" er nú yfirleitt kaffi+sígó, hef einhvernvegin ekki vanið mig á að borða morgunmat, strákarnir mínir borða morgunmat samt.  Í morgun (kl 11:30 þá er ennþá morgunn!!!) fékk ég mér abt-mjólk með jarðarberjum og musli,  það tók mig rúmar 5 mín að sortera muslíið  Blush borða ekki svona þurrt papaya, tíndi 22 stk úr lokinu.  En common ég borðaði fyrir hádegi og það er sko frétt til næsta bæjar. Tounge

 

Eldri guttinn heima veikur, eða semsagt hann vaknaði með svo geggjaðan hausverk að hann lagði sig bara aftur.  Ég skrifa það nú á svefnleysi, hann kom seint heim, lærði eitthvað og kl 2:30 held ég að klukkan hafi verið, þá laumast hann í náttborðið mitt (sem ég skrúfaði saman EIN) og tók Harry Potter, veit samt ekkert hvað hann las lengi.  En það er svoldið erfitt líf að vera í skóla-vinna og vera í hljómsveit+ kærastan  InLove      Nei hann er obbolega duglegur stráksi   Wink

YES, þvottavélin er búin og þá get ég farið og sett í aðra Whistling   spennó líf hér í Mosóbæ, hehe

Later.........


Yejjjj, haha

Ný vinnuvika byrjuð (ef ég væri vinnandi) og skólinn byrjaði í morgun hjá mínum gutta, ekki mikið mál að vekja hann í morgun, en bojjj var minn þreyttur þegar heim kom, ætti að fara snemma að sofa í kvöld (vonandi)  Tounge  

Helgin fór eiginlega bara í rólegheit og þannig,  fórum reyndar óvænt á Bubba tónleikana með Einari og Steinu, það var bara fínt.  Atli bróðir hefði frekar átt að fara en ég, er nebbla ekki mesta Bubba fan í heimi sko, en hann er bara núna í Kambódíu (ef þau eru ekki komin til Vietnam) með Önnu Karen sinni og svo á hann afmæli á morgun Wizard 

 

Úfff orðin tóm í hausnum, later........


Hef eiginlega bara..........

Ekkert að segja.   En Gleðilegt ár allir Smile   Áttum rosalega góð áramót,  ég er reyndar rosalega lítið fyrir þessar helv.... sprengjur en fæ víst ekki að loka mig inní herbergi með headphone á hausnum, hmmm verð bara með Ipod á eyrunum á næstu áramótum Cool

Jú fór með Friðgeir á Laugaveginn í gær og týndi honum Frown,   bílastæðavesen og svona en ég fann hann að lokum, shit mér leið ekki vel.  Hann var nú ekkert hræddur og ég næstum farin að grenja að leita af krakkanum á Laugaveginum.

Farin að gera límmiða fyrir krakkann, svo hann geti merkt hjólið sitt, og verið flottasturTounge

Later.................. 


Vatnselgur....

Enda ætla ég bara að vera heima í dag, myndi örugglega finna hálkublett, detta í honum og drukkna Crying, nei segi bara svona.  Náttfatadagur hjá mér í dag, leggjast svo annað slagið í rúmið með Harry Potter, borða (hmm, best að plata kallinn í búðina áður en hann fer að vinna í dag).  Jamm fínn dagur bara er það ekki???  Tounge


mbl.is Lögregla varar við vatnselg á götum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband