22.5.2008 | 11:59
Jebb, orðin aðeins eldri
Já er víst orðin 40 ára:-) átti yndislegan afmælisdag í fyrradag, fékk fjölskylduna í góðgæti og svona, rosa fínt. Svo verður tekið partý á þetta um helgina, og að sjálfsögðu verður eurovisionið uppá vegg hér (sem minnir mig á það að biðja brósa minn um myndvarpann *note to self* ) af því að ég er viss um að þau komist áfram í kvöld *bjartsýnisverðlaun dagsins fær ÉG hehe, nei held að þau komist áfram.
Svo var fyrsta enduro keppni sumarsins um síðustu helgi, mínir báðir kepptu, stráksi var að standa sig vel bara í rigningunni og drullunni en hjólið bilaði, hann braut keðjusleðann svo hann gat ekki verið með í seinna motoinu og hann varð hundfúll með það, en við vorum ekki með aukakeðjusleða með, svo hann bara chillaði og hjálpaði pabba sínum og Þóri, sem kepptu saman í tvímenning, það gekk svona la la hjá þeim, brautin var náttúrulega bara ein drulla og klettar, mjög erfið, en þeir lentu í 6 sæti í tvímenning semsagt, það voru 11 tvímenningslið. Hér er flott mynd af Guðna í keppninni.
Síðan eru bara 2 vikur í fyrstu motocross keppnina og getum við ekki beðið, sérstaklega stráksi.
Later...............
Athugasemdir
Til hamingju með afmælið. Fólk segir að við 40 byrji lífið. Ég veit það ekki, ég drekk ekki mjólk. Úpps ég meinti að ég hef ekki náð þeim aldri.
Fjóla Æ., 22.5.2008 kl. 13:22
Hehe Fjóla og takk fyrir kveðjuna, jú nú er lífið loksins byrjað
Bryndís, 22.5.2008 kl. 13:39
VAAAAAÁ!!! Ertu orðin fertug kona?! Innilega til hamingju með það Bryndís mín Ekki að það sé hár aldur, en fyrir mér ertu alltaf stelpuskott með vott af gelgju. Þú ert æði
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 16:20
Hann er svo flottur á hjólinu. Við sjáumst nú á fyrstu motocrss keppninni eftir 2 vikur. Alexander er orðinn ekkert smá spenntur.
Til hamingju jmeð afmælið um daginn og góða skemmtun í veislunni ( partýinu ).
Hulda Sigurðardóttir, 22.5.2008 kl. 18:35
Innilegar hamingjuóskir með afmælið Dísa mín.
Vonandi gengur vel á mótum sumarsins
Ragnheiður , 22.5.2008 kl. 18:55
Takk
Arna: Jamm, eru gelgjur ekki frábærar?? hehe
Hulda: Já sjáumst í Sólbrekku, vonandi gengur allt upp hjá okkar strákum
Ragga: Takk og já vonandi gengur allt upp í mótum sumarsins, minn ætlar sér stóra hluti
Bryndís, 22.5.2008 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.