13.2.2008 | 11:00
Blogg!!!
Er ekki hætt að blogga (held ég), hef bara eitthvað lítið að segja þessa dagana. Er bara að bíða eftir sumrinu, búin að fá nóg af þessum snjó Langar að fara hjóla og svona, get nú alveg hjólað í snjó sko, en er bara kuldaskræfa, hehe. Ætla að reyna plata kallinn að koma að hjóla um helgina, verðum bara að gera það fyrripartinn af því að Friðgeir er að fara vinna kl 15 í Krónunni, það á alveg eftir að ganga upp, svo er bara spurningin hvert maður fer að hjóla???
Ég byrjaði í líkamsrækt í síðustu viku hehe, já fór inn á líkamsræktarstöð í fyrsta skipti EVER, komst að því að ég er í hörmulegu formi, en þá bara lagar maður það og bætir sig, mér finnst þetta eiginlega bara gaman (ennþá allavega). Þarf svo að finna mér góðan sjúkraþjálfara til að taka kögglana úr bakinu, hálsinum, ja eiginlega bara í öllum skrokknum, er eiginlega í steik en það er hægt að læra lifa með því, ekkert voða gott samt, hef ekki verið í sjúkraþjálfun í 3 ár sem er bara ekki sniðugt fyrir mig, vá það eru að verða komin 3 ár síðan ég fór í seinni aðgerðina og eftir 6 daga eru 18 ár síðan ég fór í fyrri aðgerðina, fékk heilablæðingu en er á LÍFI sem er náttúrulega bara gott mál.
Jæja nóg í bili og meigiði eiga góðan dag í dag :-)
Later.........
Athugasemdir
Já sæll skvísa, geggjað hjá þér að fara í ræktina :D
Líst vel á þig :)
Karen (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 21:11
Djöf, sem þú ert dugleg addna! Gangi þér ógó vel í ræktinni. Það er sko ekki auðvelt að vera með "come back" þegar skrokkurinn er annars vegar. Dugnaðardúllan þín! Lovjú honí
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 21:39
Dugleg ertu skvís gangi þér vel og takk fyrir að gerast bloggvinur minn
Brynja skordal, 14.2.2008 kl. 10:10
Hafðu góða helgi takk fyrir kvittið sæta
Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 13:35
Flottust ertu
Kristín Snorradóttir, 22.2.2008 kl. 09:21
Takk
Bryndís, 25.2.2008 kl. 08:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.